Jóhann G. Jóhannsson / texti úr fyrra Korintubréfi 13. kafla
Þótt ég talaði tungum manna og engla en hefði ekki kærleika
yrði ég hljómandi málmur
eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu en hefði ekki kærleika
ég væri ekki neitt.
Og þótt ég hefði svo sterka trú að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika
ég væri ósköp snauður.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum og framseldi líkama minn
en hefði ekki kærleika
þá væri ég engu bættari.
Kærleikur trúir öllu,
kærleikur vonar allt,
kærleikur hann umber allt
og fellur aldrei úr gildi.
Kærleikur hann umber allt og fellur aldrei úr gildi.